Hlaupasamfélagið
Hlaupasamfélag Náttúruhlaupa er fyrir fólk sem elskar að hlaupa úti í náttúrunni í skemmtilegum félagsskap. Hvort sem þú vilt njóta hlaupa á eigin forsendum eða æfa markvisst fyrir utanvegahlaup. Við mælum með að byrjendur í hlaupum og/eða utanvegahlaupum fari fyrst á grunnnámskeið.
Á upplifunaræfingum á laugardögum má velja um fimm hlaupahópa eftir getu! Fjölbreyttar staðsetningar og leiðir.
Mánudaga til fimmtudaga geta áskrifendur Hlaupasamfélagins valið um að mæta á fjölbreyttar gæðaæfingar þar sem þjálfari leggur fyrir skemmtileg og krefjandi hlaupaverkefni skv. vikuáætlun.
Lengd hlaupa á upplifunaræfingum eftir hópum



Áskriftarleiðir
Ársáskrift að Hlaupasamfélaginu er hagstæðasta leiðin til að taka þátt í Hlaupasamfélaginu. Auk aðgangs að Hlaupasamfélaginu fá áskrifendur árlega gjöf, vildarkort og afslátt af hlaupaferðum og mörgum námskeiðum Náttúruhlaupa.
Hægt er að velja um tvær greiðsluleiðir: Eingreiðsla (57.900 kr) eða mánaðargreiðslur (5.200 kr á mánuði í 12 mánuði). Það sama er innifalið í báðum geiðsluleiðum. Ársáskriftin endurnýjast sjálfkrafa að ári liðnu sé henni ekki sagt upp. Það er gert með því að senda póst á [email protected].
Mánaðaráskrift án bindingar er upplögð leið ef þú vilt prófa að vera með í Hlaupasamfélaginu eða vera aðeins ákveðin tímabil. Áskriftin hefst við skráningu og endurnýjast sjálfkrafa á mánaðarfresti nema að áskriftinni sé sagt upp. Verð: 8.900 kr. á mánuði.
- Lágmarksbinding er 1 mánuður frá skráningu.
- Segja má áskriftinni upp hvenær sem er með því að senda póst á [email protected]. Áskriftin er virk frá uppsögn og út þann mánuðinn (tímabilið miðast við nýskráningu, ekki mánaðarmót).
- Árleg gjöf, vildarkort Náttúruhlaupa og sérverð á ferðum og námskeiðum er ekki innifalin í þessari áskriftarleið.
Innifalið fyrir árs áskrifendur
- Vikuleg upplifunarhlaup þar sem hægt er að hlaupa með fimm mismunandi hópum á laugardagsmorgnum. Alltaf nýr upphafsstaður og hlaupaleið í hverri viku.
- Vikulegar gæðaæfingar allt árið. Gæðaæfingar fara fram miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 17:30-18:30 á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.
- Fjallahlaupaæfingar eru á fimmtudögum kl. 17:30.
- Frjálst er að mæta á eins margar æfingar í viku og fólk vill en þátttakendur skrá sig á æfingarnar með nokkurra daga fyrirvara.
- Í vikulegum netpósti fá áskrifendur aðgang að æfingaáætlun fyrir hvern getuhóp (gull, appelsínugulur, vínrauður, grár og grænn).
- Æfingar í Hlaupasamfélaginu falla niður á flestum stórhátíðardögum og æfingar á frídögum geta verið með breyttu sniði. Í júlí og ágúst eru æfingar kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum (sumaræfingar).
- Sérverð í ákveðin keppnishlaup og undirbúningsnámskeið.
- Vildarkort með afslætti hjá ýmsum samstarfsaðilum með vörum tengdum hlaupum, heilsu og hamingju.
- Sérverð á flestum hlaupaferðum Náttúruhlaupa.
- Gjöf merkt Náttúruhlaupum (afhent að vori til).
- Mánaðaráskrift án bindingar: Aðgangur að öllum æfingum Hlaupasamfélagsins en gjöf, vildarkort og sérverð er ekki innfalið.
Upplifunaræfingar á laugardögum
- Við hlaupum á mismunandi stöðum í náttúrunni á Höfuðborgarsvæðinu og útjöðrum þess.
- Á upplifunaræfingum hleypur fólk á sínum þægilega hraða og áherslan er á að njóta og hafa gaman.
- Boðið er upp fimm getuskipta hópa!
- Ekki þarf að binda sig við sama hóp hvern laugardag en velja þarf hóp með tilliti til hraða og getu.
Gæðaæfingar
- Gæðaæfingar eru flestar miðsvæðis og eru þær 1 klst. að lengd. Þar er lögð áhersla á hraðabreytingar, brekkur, styrktaræfingar og hlaupastíl en þátttakendur stýra ákefðinni upp að vissu marki.
- Boðið er upp gæðaæfingar mánudaga (öll getustig), þriðjudaga (öll getustig og hraðari hópar (Grár/Grænn) og miðvikudaga (öll getustig) kl. 17:30-18:30.
- Á fimmtudögum er fjallahlaupaæfing fyrir öll getustig og fjallagæðaæfing (Grár/Grænn).
- Áskrifendur geta mætt á fleiri en eina gæðaæfingu í viku, en við mælum með ákveðnum æfingum fyrir mismunandi getustig.