Hlaupasamfélagið

Hlaupasamfélag Náttúruhlaupa er fyrir fólk sem elskar að hlaupa úti í náttúrunni í skemmtilegum félagsskap. Hvort sem þú vilt njóta hlaupa á eigin forsendum eða æfa markvisst fyrir utanvegahlaup. Við mælum með að byrjendur í hlaupum og/eða utanvegahlaupum fari fyrst á grunnnámskeið.

Á upplifunaræfingum á laugardögum má velja um fimm hlaupahópa eftir getu!  Fjölbreyttar staðsetningar og leiðir. 

Mánudaga til fimmtudaga geta áskrifendur Hlaupasamfélagins valið um að mæta á fjölbreyttar gæðaæfingar þar sem þjálfari leggur fyrir skemmtileg og krefjandi hlaupaverkefni skv. vikuáætlun. 

Lengd hlaupa á upplifunaræfingum eftir hópum

5-7km

Gull-gulur

7-9km

Appelsínugulur

10-13km

Vínrauður

14-20km

Grár

14-20km

Grænn

HLS Hvaleyrarvatn haust 22 - 6 of 20

Áskriftarleiðir

Ársáskrift að Hlaupasamfélaginu er hagstæðasta leiðin til að taka þátt í Hlaupasamfélaginu. Auk aðgangs að Hlaupasamfélaginu fá áskrifendur árlega gjöf, vildarkort og afslátt af hlaupaferðum og mörgum námskeiðum Náttúruhlaupa.

Hægt er að velja um tvær greiðsluleiðir: Eingreiðsla (57.900 kr) eða mánaðargreiðslur (5.200 kr á mánuði  í 12 mánuði). Það sama er innifalið í báðum geiðsluleiðum. Ársáskriftin endurnýjast sjálfkrafa að ári liðnu sé henni ekki sagt upp. Það er gert með því að senda póst á [email protected].

Mánaðaráskrift án bindingar er upplögð leið ef þú vilt prófa að vera með í Hlaupasamfélaginu eða vera aðeins ákveðin tímabil. Áskriftin hefst við skráningu og endurnýjast sjálfkrafa á mánaðarfresti nema að áskriftinni sé sagt upp. Verð: 8.900 kr. á mánuði.

  • Lágmarksbinding er 1 mánuður frá skráningu.
  • Segja má áskriftinni upp hvenær sem er með því að senda póst á [email protected].  Áskriftin er virk frá uppsögn og út þann mánuðinn (tímabilið miðast við nýskráningu, ekki mánaðarmót).
  • Árleg gjöf, vildarkort Náttúruhlaupa og sérverð á ferðum og námskeiðum er ekki innifalin í þessari áskriftarleið. 
5.200kr

á mánuði 

(binding í 12. mán.)

Eða eingreiðsla 57.900 kr fyrir árið

8.900kr

á mánuði 

(án bindingar)

Innifalið fyrir árs áskrifendur

  • Vikuleg upplifunarhlaup þar sem hægt er að hlaupa með fimm mismunandi hópum á laugardagsmorgnum. Alltaf nýr upphafsstaður og hlaupaleið í hverri viku.
  • Vikulegar gæðaæfingar allt árið. Gæðaæfingar fara fram miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 17:30-18:30 á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.  
  • Fjallahlaupaæfingar eru á fimmtudögum kl. 17:30.
  • Frjálst er að mæta á eins margar æfingar í viku og fólk vill en þátttakendur skrá sig á æfingarnar með nokkurra daga fyrirvara.
  • Í vikulegum netpósti fá áskrifendur aðgang að æfingaáætlun fyrir hvern getuhóp (gull, appelsínugulur, vínrauður, grár og grænn). 
  • Æfingar í Hlaupasamfélaginu falla niður á flestum stórhátíðardögum og æfingar  á frídögum geta verið með breyttu sniði. Í júlí og ágúst eru æfingar kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum (sumaræfingar). 
  • Sérverð í ákveðin keppnishlaup og undirbúningsnámskeið.
  • Vildarkort með afslætti hjá ýmsum samstarfsaðilum með vörum tengdum hlaupum, heilsu og hamingju.
  • Sérverð á flestum hlaupaferðum Náttúruhlaupa.
  • Gjöf merkt Náttúruhlaupum (afhent að vori til).
  • Mánaðaráskrift án bindingar: Aðgangur að öllum æfingum Hlaupasamfélagsins en gjöf, vildarkort og sérverð er ekki innfalið.

Upplifunaræfingar á laugardögum

  • Við hlaupum á mismunandi stöðum í náttúrunni á Höfuðborgarsvæðinu og útjöðrum þess. 
  • Á upplifunaræfingum hleypur fólk á sínum þægilega hraða og áherslan er á að njóta og hafa gaman. 
  • Boðið er upp fimm getuskipta hópa!
  • Ekki þarf að binda sig við sama hóp hvern laugardag en velja þarf hóp með tilliti til hraða og getu.

Gæðaæfingar

  • Gæðaæfingar eru flestar miðsvæðis og eru þær 1 klst. að lengd. Þar er lögð áhersla á hraðabreytingar, brekkur, styrktaræfingar og hlaupastíl en þátttakendur stýra ákefðinni upp að vissu marki.
  • Boðið er upp gæðaæfingar mánudaga (öll getustig), þriðjudaga (öll getustig og hraðari hópar (Grár/Grænn) og miðvikudaga (öll getustig) kl. 17:30-18:30. 
  •  Á fimmtudögum er fjallahlaupaæfing fyrir öll getustig og fjallagæðaæfing (Grár/Grænn).
  • Áskrifendur geta mætt á fleiri en eina gæðaæfingu í viku, en við mælum með ákveðnum æfingum fyrir mismunandi getustig.

Tímasetning æfinga

Upplifunaræfingar